29.11.2011 14:25
Fótboltaæfingum hætt hjá 6. og 7. flokki
Af óviðráðanlegum orsökum verður að hætta knattspyrnuæfingum hjá 6. og 7. flokki. Stefnt er að því að taka upp þráðinn á nýjan leik eftir áramót. Ekki verða innheimt æfingagjöld fyrir æfingar í nóvember, né heldur hjá 4. og 5. flokki í fótbolta.
Stjórnin
29.11.2011 14:18
UMFL hlýtur styrk frá KEA
Ungmennafélag Langnesinga hlaut á dögunum rausnarlegan styrk úr Menningar- og viðurkenningarsjóði KEA, alls 200.000 krónur, sem varið verður til uppbyggingar á Afreksíþróttaskóla UMFL og til kaupa á Kids Athletics frjálsíþróttabúnaði.
Afreksíþróttaskóla UMFL var hleypt af stokkunum nú í haust og hefur gengið vonum framar, enda aðsókn á æfingar verið mjög góð. Fullvíst er að styrkurinn góði frá KEA mun enn frekar ýta undir áhugan og aðsóknina og hyggst UMFL leggja sambærilega fjárhæð til viðbótar til kaupa á búnaði.
Það voru þær Sólrún og Rakel Siggeirsdætur sem tóku við styrknum fyrir hönd UMFL við í Ketilhúsinu á Akureyri þann 23. nóvember sl. Óhætt er að segja að Afreksíþróttaskóli UMFL hafi vakið athygli viðstaddra og máttu þær systur gera grein fyrir starfseminni í sjónvarpsviðtali (sjá á 13. mínútu)
Í afreksíþróttaskóla UMFL er lagt upp úr að kenna börnum lífstíl íþróttamannsins gegnum frjálsar íþróttir og fimleika. Ásamt að þjálfa börnin í frjálsum íþróttum og fimleikum, fá þau fræðslu um mikilvægi næringar og svefns, fyrirmyndarhegðun og -framkomu, sjálfsaga, reglur, hvatningu, markmiðasetningu, sigra og töp, samvinnu og margt fleira sem fyrirmyndar íþróttamaður hefur að leiðarljósi. Hugmyndin er að kenna þeim að afreksíþróttamaður er líka sá íþróttamaður sem stendur sig gagnvart sjálfum sér og samfélaginu sem hann býr í, ber virðingu fyrir sér og öðrum og beitir sjálfsaga í því sem hann gerir. Afreksíþróttamaður er fyrirmynd jafnt utan sem innan íþróttsalarins.
![]()
19.10.2011 14:13
Af gefnu tilefni...
Kæru félagar og foreldrar!
Vegna miskilnings urðu einhverjir hnökrar á mætingu þjálfara í einstaka æfingar, nú í upphafi vetrarstarfsins. Stjórn UMFL biðst afsökunar á því, hafi það valdið óánægju eða óþægindum, og vonar að samstarf félagsins við félaga og foreldra verði gæfuríkt og blómlegt hér eftir sem áður fyrr.
Stjórnin
06.10.2011 11:31
Vetrarstarf UMFL 2011/2012
Vetrarstarf UMFL hófst samkvæmt nýrri æfingatöflu þriðjudaginn 4. október. Að þessu sinni verður boðið upp á æfingar í fótbolta, körfubolta, frjálsum íþróttum og fimleikum.
Líkt og undanfarin ár verður æfingagjald 2.500 krónur á mánuði, burtséð frá því hversu margar æfingar eru sóttar. Munið: Ein æfing-eitt æfingagjald!
UMFL hefur ráðið til sín einvalalið til að annast þjálfun í vetur:
Sigþór M. Þórarinsson - 6. & 7. fl.karla og kvenna í fótbolta.
Þórarinn Þórisson - 3., 4. og 5. fl. kvenna í fótbolta, 4. og 5. fl. karla í fótbotla og körfubolti yngri og eldri
Guðmundur Jóhannson - 2. og 3. fl. karla í fótbolta.
Anna Rún Kristjánsdóttir og Hannah Hupfeld - Afreksíþróttaskóli UMFL (frjálsar og fimleikar)
ÁFRAM UMFL!
Stjórnin
06.10.2011 11:07
Afreksíþróttaskóli UMFL
Í afreksíþróttaskóla UMFL verður lagt upp úr að k
enna börnum lífstíl íþróttamannsins gegnum frjálsar íþróttir og fimleika. Ásamt að þjálfa börnin í frjálsum íþróttum og fimleikum, fá þau fræðslu um mikilvægi næringar og svefns, fyrirmyndarhegðun og -framkomu, sjálfsaga, reglur, hvatningu, markmiðasetningu, sigra og töp, samvinnu og margt fleira sem fyrirmyndar íþróttamaður hefur að leiðarljósi. Hugmyndin er að kenna þeim að afreksíþróttamaður er líka sá íþróttamaður sem stendur sig gagnvart sjálfum sér og samfélaginu sem hann býr í, ber virðingu fyrir sér og öðrum og beitir sjálfsaga í því sem hann gerir. Afreksíþróttamaður er fyrirmynd jafnt utan sem innan íþróttsalarins.
Afreksíþróttaskólinn er fyrir hrausta og sterka krakka!
Einkunarorð afreksíþróttaskólans eru GÆS: Get-Ætla-Skal!
Hlökkum til að sjá ykkur,
Anna Rún og Hannah
04.09.2011 19:21
Þjálfari óskast
UMFL leitar að þjálfara í 50% starf við þjálfun á Þórshöfn í vetur. Viðkomandi þarf að geta þjálfað fótbolta og frjálsar íþróttir og jafnvel körfubolta og handbolta. Einnig er möguleiki á að þjálfa aðrar íþróttir ef áhugi er fyrir hendi, s.s. dans, sund, fimleika o.fl. Í boði eru ásættanleg laun og sveigjanleiki varðandi æfingatíma, æfingaskipulag o.þ.h.
UMFL hefur undanfarin ár boðið börnum og unglingum upp á fjölbreytt og metnaðarfullt íþróttastarf, í fjölskylduvænu og vaxandi samfélagi á Þórshöfn. Á Þórshöfn er frábær íþróttaaðstaða; nýlegt íþróttahús og sundlaug, góður grasvöllur, sparkvöllur og fleiri ótal spennandi möguleikar fyrir áhugasama þjálfra.
Hafir þú áhuga á að taka þátt í uppbyggingu íþróttafélags á uppleið, skaltu hafa samband fyrir 15. september nk.
Nánari upplýsingar veita:
Helgi Mar í síma 861-8691 eða í helgimar@internet.is
Þorsteinn Ægir í síma 847-6992 eða í thorsteinna@simnet.is
Stjórn UMFL
22.08.2011 11:21
Æfingum frjálsra íþrótta hætt
Vegna dræmrar þátttöku hefur æfingum frjálsra íþrótta verið hætt í sumar. Þráðurinn verður vonandi tekinn upp að nýju í vetur.
UMFL
19.08.2011 11:56
Æfingum hætt hjá 4. og 5. flokki
Æfingum 4. og 5. flokks karla hefur verið hætt í sumar en þeim boðið að mæta á æfingar 3. flokks það sem eftir lifir sumars, á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 19.30.
10.08.2011 14:28
Æfingum hætt hjá 6. og 7. flokk
Vegna lélegrar þátttöku hefur verið ákveðið að hætta æfingum 6. og 7. flokks í sumar. Ekki verða innheimt æfingagjöld vegna ágústmánaðar.
Stjórn UMFL
