Lög UMFL
Lög Ungmennafélagsins Langnesinga
Heiti félagsins
1. grein
Félagið heitir "Ungmennafélag Langnesinga", skammstafað UMFL. Heimili þess er á Þórshöfn. Starfssvæði UMFL er Langanesbyggð.
Merki félagsins
2. grein
Merki félagsins er skjöldur með gulum grunnfleti og svartri og hvítri útlínu. Mynd er af hvítum höndum í kross og lítið merki Langanesbyggðar fyrir neðan. Laufblöð eru utan um hendurnar og Langanesbyggðamerkið. Skammstöfunin UMFL stendur fyrir ofan hendurnar og Þórshöfn stendur fyrir neðan hendurnar.
Markmið félagsins
3. grein
Markmið félagsins eru:
a) Að auka áhuga á íþróttaiðkun og líkamsrækt.
b) Að vinna að líkamlegum og félagslegum þroska félagsmanna sinna með því að gefa sem flestum kost á að taka þátt í heilbrigðu félags- og íþróttastarfi.
c) Að standa fyrir iðkun íþrótta og stuðla að heilbrigðum lífsháttum og hollri hreyfingu.
d) Að vinna gegn neyslu áfengis, tóbaks og annarra vímuefna.
4.grein
Félögum er óheimilt að taka þátt í starfsemi félagsins undir áhrifum áfengis eða fíkniefna.
Innganga í félagið
5. grein
Innganga í félagið er öllum heimil. Hver sem óskar inntöku í félagið leggur fyrir aðila, sem aðalstjórn velur, inntökubeiðni. Viðkomandi fær inngöngu strax. Iðkendur sem æfa eða keppa undir merkjum félagsins skulu vera félagsmenn og gerist það sjálfkrafa. Heimilt er að leggja árgjald á hvern félagsmann. Hver sem fengið hefur inntöku í félagið skal gangast undir lög félagsins, hlíta keppnisferðareglum og vera félaginu til sóma hvarvetna sem þeir koma fram á vegum eða fyrir hönd félagsins.
Úrsögn úr félaginu
6. grein
Hver sem óskar úrsagnar úr félaginu leggur fyrir aðila, sem aðalstjórn velur, úrsagnarbeiðni. Enginn getur gengið úr félaginu nema hann sé skuldlaus við það. Félagar sem ekki hafa greitt gjöld sín fyrir lok hvers árs hafa með því fyrirgert rétti sínum til þátttöku í starfssemi félagsins.
Árgjöld félagsmanna
7. grein
Árgjöld félagsmanna skulu ákveðin á aðalfundi hverju sinni og skulu greiðast eigi síðar en í lok hvers árs. Félagsmenn að 6 ára aldri greiða ekkert árgjald en 6 til 12 ára greiða ½ gjald. Stjórn félagsins skal halda spjaldskrá yfir alla meðlimi félagsins.
Æfingagjöld
8. grein
Stjórn félagsins er heimilt að innheimta af öllum meðlimum hennar sérstök æfingagjöld.
Stjórnskipan
9. grein
Aðalstjórn félagsins ber að efla félagið á allan hátt og gæta hagsmuna þess í hvívetna. Hún hefur umráðarétt yfir eignum félagsins og markar stefnu þess í aðalatriðum.
Stjórnin skal sjá til þess að allir sjóðir félagsins ávaxtist í banka eða sparisjóði.
Stjórnin hefur heimild til að víkja mönnum úr félaginu álíti hún framkomu þeirra og gjörðir vítaverðar.
Stjórnin tekur ákvörðun um skiptingu fjármagns sem félagið hefur aflað.
Stjórninni er heimilt að skipa sérnefndir svo sem húsnefnd, skemmtinefnd, fjáröflunarnefnd og fleiri ef þurfa þykir. Starfstímabil þessara nefnda skal aldrei vera lengra en fram að næsta aðalfundi félagsins.
Aðalstjórn UMFL skal kosin á aðalfundi félagsins til eins árs í senn. Stjórn félagsins skipa 5 aðalmenn og 2 til vara: Formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri, meðstjórnandi og 2 til vara.
Formaður hefur í hendi æðsta framkvæmdavald í félaginu og skal hann gæta þess að allir félagsmenn sinni skyldum sínum og hafi lög félagsins í heiðri. Formaður skal boða til stjórnarfunda þegar þurfa þykir.
Varaformaður skal aðstoða formann í öllu því sem nauðsynlegt er og taka sæti hans í forföllum.
Ritari skal halda gerðabók, gefa út tilkynningar og rita annað það sem með þarf. Einnig skal hann gera félagatal á hverju ári.
Gjaldkeri skal veita móttöku öllum tekjum félagsins og greiða reikninga þess. Hann skal á hverjum aðalfundi flytja skýrslu yfir allt það fé sem hann hefur veitt móttöku eða innt af hendi og skulu reikningar félagsins liggja fyrir á aðalfundi.
Reiknisár félagsins
10. grein
Reikningsár félagsins skal vera almanaksárið.
Aðalfundur félagsins
11. grein
Aðalfund skal halda eigi síðar en í lok apríl ár hvert og skal hann boðaður með minnst 3 sólarhringa fyrirvara og auglýstur á sem víðtækastan hátt. Í aðalfundarboði skal kynna dagskrá, fundartíma og fundarstað. Aðalfundur Ungmennafélags Langnesinga er æðsta vald innan félagsins og hefur ákvörðunarrétt í öllum málefnum þess. Stjórnin fer með æðsta vald í málefnum félagsins milli aðalfunda. Aðalfundur telst lögmætur ef löglega er til hans boðað.
Á dagskrá aðalfundar skal vera:
a) Að formaður setur fundinn
b) Að kjósa fundarstjóra og fundarritara
c) Að flytja skýrslu stjórnar um starfsemi ársins.
d) Lesnir og skýrðir reikningar til samþykktar.
e) Að taka ákvörðun um lagabreytingar.
f) Að taka ákvörðun um árgjöld.
g) Að kjósa stjórn.
h) Að taka til umræðu og afgreiðslu önnur mál sem félagsstjórn, einstaklingar eða félagsmenn leggja fyrir fundinn.
i) Fundarslit
12. grein
Á aðalfundi fer hver félagi með eitt atkvæði og einfaldur meirihluti atkvæða ræður úrslitum mála. Kosningar skulu vera skriflegar ef þurfa þykir. Séu atkvæði jöfn skal kjósa bundinni kosningu um þá menn að nýju. Verði atkvæði þá enn jöfn skal hlutkesti ráða. Endurkjör er heimilt. Tillögur um lagabreytingar verða að berast til formanns félagsins með minnst 2 daga fyrirvara. Lagabreytingar öðlast aðeins gildi ef að 2/3 greiddra atkvæða styðji þær. Rétt til setu á aðalfund með málfrelsi og tillögurétt hafa allir lögmætir félagar. Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa allir félagar 13 ára á árinu og eldri.
Kjörgengir til stjórnar og nefndarstarfa eru lögmætir félagar 13 ára á árinu og eldri, nema til formanns og gjaldkera skulu þeir vera orðnir 20 ára.
Stjórnarfundur
13. grein
Stjórnarfundur er lögmætur, ef meirihluti stjórnar situr hann. Einfaldur meirihluti atkvæða ræður úrslitum mála á stjórnarfundum.
Félagsfundur
14. grein
Stjórn félagsins getur boðið til almenns félagsfundar, þegar hún telur nauðsynlegt. Boða skal til almenns félagsfundar ef 10 atkvæðisbærir félagsmenn hið fæsta, óska eftir því skriflega. Stjórn félagsins skal ávallt vera til staðar á félagsfundum. Á fundum félagsins ræður einfaldur meirihluti greiddra atkvæða úrslitum mála.
Aðrir meðlimir
15. grein
Meðlimir annarra ungmennafélaga innan U.M.F.Í. hafa seturétt að fundum félagsins, málfrelsi og tillögurétt.
16. grein
Brot gegn lögum félagsins skal stjórnin taka til úrskurðar. Endurtekin brot varða brottrekstur úr félaginu.
17. grein
Engu má breyta í lögum þessum nema á aðalfundi og þó því aðeins að 2/3 hlutar greiddra atkvæða lögmæts fundar séu breytingu fylgjandi.
18. grein
Lög þessi öðlast gildi þegar þau hafa verið samþykkt á aðalfundi félagsins og falla þá jafnframt úr gildi fyrri lög félagsins.
Lög þessi eru samþykkt 1. apríl 2010
